Neighbours

+00002008-12-02T19:44:59+00:00312008bUTCTue, 02 Dec 2008 19:44:59 +0000 16, 2006 at 12:55 p12 (Uncategorized)

Þið sem horfið á neighbours, skuluð ekki lesa lengra! Þar sem þetta er mannskemmandi og þetta eyðileggur fyrir ykkur sem eiga eftir að sjá þetta!

Áður en ég byrja þá ætla ég að segja að ég horfi á neighbours fram í tímann, þannig ég er langt á undan ykkur hinum!

Í gær var ég að spila borðtennis í sal menntaskólans við vinkonu mína, Hafrúnu. Og ég spurði svona í djóki “Hvaða gaurum ertu heit fyrir í neighbours?” Hún “Uhm…Declan…ooog Marco.” Og án þess að hugsa sagði ég “En hann er dauð….” en hætti strax að tala og leit á Hafrúnu, hún snéri baki í mig og var að taka upp kúluna,  og hún stóð kjurr og sagði “HVAÐ?!” og ég hugsaði “óó fokk, ég talaði yfir mig, hvað get ég sagt…” og sagði um leið “ah neiii…ég er að tala um Dan, sem lék Drew Kirk!” og hún sagði “NEI HVAÐ?!” og ég heyrði bara á röddinni að hún var fokill, fyrir utan kúluna sem mölnaði í hendinni á henni. Og sagði “Nei maður, var bara djóka…okei hann er dáinn!” Og eftir nokkur tár og spurningar til guðs “AF HVERJU!!” þá spurði hún “Hve…..hvernig dó hann?” … ég “Hann lést í eldsvoða, hann er á betri stað Hafrún!” og síðan þá hef ég ekkert séð til hennar.  SORRÝ HAFRÚN!

Permalink 10 Ummæli