Snemma
Í morgun vaknaði ég við að mamma öskraði “FARÐU!!, út með þig!” og ég auðvitað hélt að hún hefði komist í hassskápinn upp á háalofti, svo ég sest upp og horfi fram, þá sé ég mömmu hlaupandi á eftir fugli og kötturinn á eftir honum, svo ég hélt augljóslega að mig væri að dreyma svo það leið yfir mig af þreytu aftur (EKKI HRÆÐSLU!!). Svo vaknaði ég og sá að gólfið hjá mömmu var fullt af fjöðrum, annaðhvort hefði mamma verið í koddaslag eða þá að fugl hefði komist inn. Og það var fugl sem komst inn.
En hann lifði samt af, missti samt mikið af fjöðrum og eflaust geðheilsu.
Kolla sagði,
+00002008-10-18T23:50:29+00:00312008bUTCSat, 18 Oct 2008 23:50:29 +0000 16, 2006 kl. 12:55 p10
Hahahaha…..ég hljó mjög lengi af þessari færslu.
Hahahaha…ég bara verð að viðurkenna að þetta er ein fyndnasta færsla sem ég hef lesið frá þér dude.