Að taka lit.

+00002008-05-18T23:19:20+00:00312008bUTCSun, 18 May 2008 23:19:20 +0000 16, 2006 at 12:55 p05 (Uncategorized)

Þegar ég var lítill og vann í unglingavinnunni þá varð ég alltaf mjög brúnn, en svo þegar ég hætti að vinna þar þá hætti ég alveg að verða brúnn. Síðan þá hef ég verið eins og gamall hundaskítur (svona hvítur sem mölnar niður.) Hef oft prófað að vera úti í sólbaði og reyna taka smá lit, sýna smá lit HAHAHA djók allavega það hefur ekki tekist. Í fyrra var 30° hiti í hallormsstaðaskógi eða sirka, og ég, Kolla systir, Árni kærasti hennar ákváðum að fara þangað og fara í sólbað, svo komu Finnur og Björgvin og pabbi líka. Kolla og Árni gufuðu upp þau urðu svo brún, hélt ég hefði týnt Finni því eina manneskjan sem ég sá var Björgvin og pabbi og einhver svertingi sem þóttist vera tala við okkur, og ég varð ekki einu sinni rauður, ég varð bara ennþá eins og helvítis gamall hundaskítur! En hinsvegar, komst ég að því í fyrra að húð sem verður brún af völdum sólarinnar er merki um skemmda húð, þannig að ég er bara með mjög heilbrigða húð! Ljóta, en heilbrigða. Svo um daginn var ég veikur og þurft að fara heim úr vinnunni því ég var orðinn grænn í framan og byrjaður að tala tyrknensku. Þannig það er önnur góð frétt þarna inn í, húðin á mér tekur lit! Ekki brúnan kannski en grænan, og grænn er aaðeins sérstakari litur á manneskju.  Gott dæmi um skemmda og ógeðslega húð!

Permalink 5 Ummæli

Typpi (mörg)

+00002008-05-17T22:23:36+00:00312008bUTCSat, 17 May 2008 22:23:36 +0000 16, 2006 at 12:55 p05 (Uncategorized)

http://dv.is/frettir/lesa/8844

Grein um 4 eða 5 menn sem ætla gefa tittlingina á sér til reðursafnið einhverstaðar (Er veikur, gleymi öllu á nokkrum sekúndum). Og sá elsti, er íslendingur (hinir eru allir útlendir) og eigandi reðursafnsins sagði þetta „Það er hægt að þenja hann ef hann er tekinn af volgur og reisa hann. Páli er mikið í mun að hann varðveitist með reisn. Þetta verður að vera gott eintak,“ segir Sigurður” og við þetta leið yfir mig fjórum sinnum, einnig ældi ég fimm sinnum og fékk blóðnasi tvisvar sinnum. En fallegt er þetta þó. Ég þangað þegar Páll deyr!

Permalink 4 Ummæli