Borg…
Ég var að búa til einhverja borg, eða reyndar ekki einhverja, heldur Fellaborg í leik. klikkið hér til að flytja þangað : http://fellaborg.myminicity.com/
Fólk
Fyndið hvað fólk getur kvartað yfir öllu, í dag var ég að vinna í olís og maður labbar inn og vekur mig og spyr hvort ég ætli ekki að afgreiða?! Hvað er að fólki…nei okei, ég stóð þarna og maður labbaði einn og borgar eitthvað sem hann keypti, og áður en hann kom inn þá las hann á opnunartíma olís yfir jólin, og sagði svo þegar hann var búinn að borga “Opið á aðfangadag?! Rosalega peningagræðgi í ykkur..” og alltaf þegar ég nenni ekki að hlusta á fólk eða fólk segir eitthvað sem ég nenni ekki að meðtaka þá segi ég “Já..” (segi samt oftast “nákvæmlega”). Annars bætti ég norðurlandametið í hnerri og ógeðisgangi í dag í vinnunni þegar ég hnerraði yfir 750 sinnum á 5 tímum. Annars er kökupartý á morgun í boði Arthurs sem verður án efa gaman. Strákarnir (Ekki mínir) eru á leiðinni austur, semsagt Finnur og Björgvin og Kolla kemur á morgun. Verður gaman! Jæja bless.
Hálsbólga
OHHHHH er með hálsbólgu á stærð við noreg…eða ég sé barnshafandi. Svona eins og í alien..nema þá kæmi geimveran úr hálsinum á mér ekki maganum. WHATEVER! Jólin byrja víst eftir fokking 4 daga…á eftir að kaupa allar jólagjafir, býst við því að gera það 23 eins og alltaf. Hef ekki rassgat segja eins og venjulega, skrifa meira á morgun. (not!)
Jodie Foster
http://www.b2.is/?sida=tengill&id=266536
“Kvikmyndaleikkonan Jodie Foster hefur staðfest opinberlega að hún sé samkynhneigð.”
Síðan hvenær hefur hún ekki verið samkynhneigð? Af hverju hélt ég alltaf að hún hafi verið lesbísk…?!