Danskeppni
Núna þegar jólin eru að nálgast, þá er vaninn í Fellabæ að allir íbúar sinnar götu komi með hópdans, og söngur verður að fylgja, besti hópdansinn, sem dansflokkur frá sauðakróki dæmir hvert ár, fær þann þann heiður að vera besti hópdans þau jól. Við í Brekkubrún erum búin að vera æfa okkur í 2 mánuði fyrir þessa keppni, Brekkubrún ákvað að vera villt þetta ár og velja erfiðan og krefjandi dans, hér getiði séð dansinn . Æfingar ganga mjög vel þótt Jarþrúður vilji ekki vera í aðalhlutverki stelpnanna, en helsti keppinautur Brekkubrúnar er Lagarfell, heimildamaður segir okkur að þau séu einnig með villtan dans, en gera meira út á sönginn, þótt hann sé dónalegur þá eru líkur á að þau sigri.Heimildamaður Brekkubrúnar komst inn á æfingu hjá Lagarfelli svo hér getið þið séð dansinn/sönginn þeirra. Takið eftir fremsta dansaranum, þetta verður mjótt á mununum! Svo er bara bíða og sjá hver vinnur.
Á MORGUN!
Ah…. bara biða eftir að það komi kvöld, þá fer ég að sofa og þegar ég vakna, þá get ég borðað það sem ég vill! Er ekki langt frá því að fara út á tún með einnota grill og ráðast á einhverja belju og steikja mér hamborgara…
2 dagar!!
Aðeins 2 dagar í stóra viðburðinn! 2 dagar þar til ég get farið að borða alvöru mat aftur, gos… og nammi! Og eftir það taka við 6 erfiðir dagar, og ég meina erfiðir! Það er ekki auðvelt að sleppa því að borða nammi/óhollustu í 6 heila daga… og ekki að borða neitt eftir klukkan 8. Ég finn lyktina af hamborgaranum sem ég ætla fá mér á laugardaginn, og ískalda gosinu… ahh…. má ekki hugsa um þetta…ahhhhhhh…
Svona er þetta í alvöru hjá mér! Annars var enginn brandari í þessu bloggi hjá mér, fatta samt ekki af hverju þessi manneskja er að svelta sig, hún er mjó þarna! Allavega, ég gerði engar tilraunir til að vera fyndinn í þessu bloggi. yeahwhatever!
