Helíumblaðra
Er byrjaður að borða hollan mat núna, þetta er þriðji dagurinn sem ég borða hollt og það gengur ágætlega eins og er, nema á kvöldin þegar ég ligg inn í herbergi sveittur og ruggandi mér í fósturstellingunni yfir hversu svangur ég er, en það hlýtur að líða hjá, ekki satt? Allavega, snjórinn er kominn og ég er ennþá á sumardekkjum sem er ekkert það slæmt, renn reyndar aðeins en læt vetrardekkinn á morgun. Þegar ég kom heim í gær úr skólanum þá fann ég allsvaðalega kattarskítslykt, eða bara lykt af venjulegu líki… það var annaðhvort. Þannig ég öskraði á mömmu, og hún var sofandi, svaraði og sofnaði aftur. Þannig þetta var orðið frekar ljóst að þetta var kattarskítur, þannig ég fór inn í herbergi og ofan á drasli sem ég set lappirnar oft upp á, á að vera svona “nuddtæki” en er það ekki, var kattarskítur, og ég fór í hanska (eins og fólkið í CSI gerir alltaf) og tók sýni úr saurnum og fór með hann á rannsóknarstofuna mína. Svo þreif ég þetta, eftir að það var búið að líða yfir mig fjórum sinnum vegna lyktarinnar (rétt sagt?). Svo spreyjaði ég einhverju ilmvatni þarna á gólfið og núna lyktar herbergið mitt eins og eartha kit, frekar ógeðslegt. Allavega, það koma 3 kettir til greina sem hafa skitið þarna á gólfið, elsti kötturinn, fatlaði kötturinn, kvenmaðurinn. Nema þetta hafi verið kettlingurinn. 
Það var lítið hús
Um hvað á ég að blogga eiginlega?! Það gerist ekki neitt skemmtilegt sem ég get bloggað um. Einhver?
Músin – part two
Sat hér í tölvunni þegar ég heyrði mömmu öskar “Hagalamalaamalaa MÚÚS!” og ég hljóp fram og þá var þetta sama músin og fyrir NOKKRUM DÖGUM! sem týndist hérna. Ég þekki þessa mús hvar sem er! Ég og mamma vorum búin að sannfærast um að þessi mús hefði örugglega sloppið út og eitthvað. En nei hún er búin að vera inni allan tímann. En svo reyndu kettirnir að ná henni en þessi mús er ekkert grin, hún er fimari en aðrar mýs, því hún stökk eins og ninja í burtu og svo þegar litli kettlingurinn náði henni, þá einhverneigin slapp hún aftur og fór undir ísskáp! Þetta er alveg frábært… loksins þegar ég gat sofið á ný, þá birtist þessi mús. Læt ykkur vita þegar ég veit meira. (Veit þið viljið það!)
Mús!
Í kvöld kom útriðni kötturinn hérna heim með mús heim, og sleppti henni inni og leyfði litla kettlingnum að leika sér með hann, hvað við höfum gert henni veit ég ekki, veit ekki betur en að við tókum á móti henni kasólétti þegar enginn fress vildi hana, hugsuðum um kettlingana hennar en reyndar gáfum við þá alla nema einn sem er heima núna. Ah.. kannski þess vegna. En allavega, kettlingadrullan missti músina og nú er hún bara týnd heima! Núna eru læðan og kettlingurinn bæði frammi að “leita” að músinni. Þoli ekki svona drulluógeð! Sérstaklega ekki ef músin ákveður að fara upp í mig og eignast afkvæmi upp í mér eða þá að bíta mig til dauða! Var ekki eitt bit frá mús nóg til að eitthvað gerist? Hvað þá geðveikt mörg… á eftir að verða andvaka í nótt giska ég…og ég er ekki að grínast. Setti samt svona handklæði við gólfið við hurðina svo hún kæmist ekki þar inn. Farinn að sooooofa….með sofa meina ég liggja í fósturstellingunni og fella nokkur tár. (Flóð)
Reykjavík
Það er svo leiðinlegt að blogga þegar maður hefur ekkert til að blogga um, og jafnvel þó maður hafi eitthvað að skrifa um þá er það samt hundleiðinlegt. Ég sá könguló um daginn… það var býsna villt.
aaanyway. Ég er að fara til reykjavíkur á morgun ef það er laust hopp, og mun ég þá fara í hádeginu og koma til baka á sunnudeginum. Það verður totally farið í keilu, síðast þegar ég fór í keilu þá vann ég og Finnur, eða jafntefli. Báðir með 132 stig. BJÖRGVIN GUNNARSSON TAPAÐI.. ops rakst í shift takkann. Það var bittersweet fyrir hann örugglega að sjá litla bróðir blómstra þetta kvöld. Annars er ég með nokkrar myndir frá keilu síðan ég hef farið í keilu undafarna mánuði/ár. Eða nei, ég var að athuga og ég á engar myndir. Mun samt taka myndir þegar ég fer til reykjavíkur um helgina. Fjör. Enda þetta blogg með mynd af goodyear módeli : ![]()
Minnir líka á síðuna www.myspace.com/famousheklamusic