Bardagi

+00002007-05-12T01:46:41+00:00312007bUTCSat, 12 May 2007 01:46:41 +0000 16, 2006 at 12:55 p05 (Uncategorized)

Fyrir nokkrum dögum lenti ég í bardaga við 6 húsflugur, og eina könguló en sá bardagi var auðveldur. Byrjaði þanng að ég kom inn í herbergið mitt og sast niður við tölvuna. Svo heyrði ég svona fluguógeðhljóð “BsssSsaumingiBssss” og ég leit upp og sá bara 6 húsflugur, ég, í flýti tók upp stílabók og barði inn í hópinn, þar fóru 3 flugur, og hinar byrja gefa frá sér hljóð hærra og hærra og ég alveg í panikki,  enda ekki skrítið, öll svona ógeð eru ógeðsleg ógeð. Svo hurfu þær allt í einu, svo byrjaði þetta aftur og ég tók aftur upp stílabókina mína aftur og hoppaði upp á rúmið mitt og öskraði “Í síðasta skiptið sem þú angrar mig, motherfucker!” og sló svo vel í fluguna að hún skaust í vegginn og í sætið mitt, ég horfði í augun á henni og svipurinn á henni sagði allt, hún vildi stríð! Þannig ég tók lokahöggið á hana og hún var dauð. Svo slökkti ég ljósin og var viðbúin öllu. Svo sá ég bara flugu stökkva á tölvuskjáinn minn og aðra fljúga rétt hjá, flugan var á lyklaborðinu mínu svo ég tók gaffalinn sem var þarna og barði fluguna með gafflinum en hin skreið í ruslið sem er við hliðina á tölvuskjánum svo hún valdi versta dauðdaga sem hægt var.

Eftir bardagann sat ég í rúminu mínu og ruggaði mér fram og til baka, sá ég svo ekki könguló röltandi í sakleysi sínu á gólfinu þannig ég tók svitalyktaeyðin minn og kramdi hana, eftir þetta var ég allir í blóði og öskrandi, ef ekki þá var ég nákvæmlega eins og þessi mynd lýsir : Flugur munu aldrei angra mig aftur!

5 Ummæli

  1. Björgvin sagði,

    hahahaha!!!

    en úú… varstu sem sagt með flott brjóst eftir bardagann?? :D

  2. Finnur sagði,

    hehehehe allt vitlaust á kaffihúsinu

  3. Brynhildur sagði,

    hahahha :D æhji ég sé þetta fyrir mér.. verst að ég er ekki með sama bardagablóðið í mér.. ég tek utan um brjóstin og öskra á hjálp vegna drottningarbýflugu sem var á gólfinu í vinnunni.. og hun var hjálpvana gat ekki einu sinni snúið sér við en ég gat nu auðvitað ekki fyrir mitt litla líf labbað framhjá :D

  4. Laufey S sagði,

    Þú ert Hetja!! ;) Bjalla í þig þegar þessi kvikindi fara að haunta mig.

  5. Hjalli sagði,

    hahah! Lenti i svipudu vid rona um daginn, vid gripum i sama hamborgarann i somu ruslatunnunni og upphofst aegilegur skarkali.

Rita ummæli