Akureyri
Á föstudaginn lagði ég á stað keyrandi í fyrsta skipti á minni ævi til akureyri, með Rögnu og Brynju. Tilgangur ferðarinnar var víst menningarferð með menntaskólanum en ég fór þangað aðallega til að heimsækja Kollu systir og Árna kærasta hennar. Lögðum eitthvað á stað um korter yfir 2, og vorum komin um hálf 6 held ég, 3 tíma og korter á leiðinni, OKEI ÉG VAR AÐEINS LENGUR EN FLESTIR AÐRIR!
Stoppuðum á laugum og ætluðum í sund en hættum við vegna þær áttu ekki sundföt og eitthvað læti. Fórum svo í sjoppuna þarna og Brynja hljóp inn og athugaði eitthvað í sjoppunni meðan ég dó næstum því úr reykeitrun í bílnum þar sem það rauk alveg rosalega úr vélinni og það kom reykur inn í bílnum líka sem var ógeðslegt. Ég fór inn og sagði konu þarna frá þessu (ég veit minna um bíla en manneskja sem veit ekkert um..bíla.) og hún sagði mér að athuga vatn og olíu, ég gerði það… eða þóttist gera það því ég kann ekkert á bíla, kann samt að athuga olíu! Keyrði svo með bílinn á verkstæði þarna við hliðina á og kallinn þar athugaði allt húddið og læti og sagði að það væri allt í lagi með hann, þannig ég, Brynja og Ragna héldum bara áfram og ekkert gerðist merkilegt á leiðinni svosem. Komum svo á akureyri um hálf 6 leitið eða um 6 … annaðhvort. Keyrðum beint í leirusjoppu sem er þarna alveg við “inngang” akureyrar og stoppuðum eitthvað, þaðan á glerártorgið og þar hitti ég Kollu systir mína
, svo skutlaði ég Brynju og Rögnu upp í menntaskóla og ef þið heyrið frá þeim að ég hafi átt erfitt með að keyra á akureyri, þá er það bull! Svo kom Kolla upp í menntaskólann og Árni svo Kolla gæti keyrt með mig um akureyri því ég vildi sjá allan staðinn …djók ég kunni ekki að keyra þarna en ALLAVEGA!
Svo eldaðuðu Kolla og Árni mjög svo ógeðslega góðan kjúkling og mikið af meðlæti
og var þetta alveg ótrúlega gott!
Á laugardeginum hitti ég svo Sögu vinkonu mína og vinkonur hennar Guðrún og Öddu, mjög fyndnar stelpur! Allavega þá var þetta mjög skemmtileg ferð og mjög gaman að fara á akureyri. Vonandi fer ég fljótlega aftur þangað. okeibæbæ
Helga Sjöfn sagði,
+00002007-04-17T12:13:05+00:00302007bUTCTue, 17 Apr 2007 12:13:05 +0000 16, 2006 kl. 12:55 p04
voru ekki fl með ykkur a leiðinni til akureyrar? :O
og 3 tímar er ekki mikið miðað við að þú þurftir að stoppa og fara með bílinn á verkstæði :O goshh