Villa!

+00002007-04-29T20:24:30+00:00302007bUTCSun, 29 Apr 2007 20:24:30 +0000 16, 2006 at 12:55 p04 (Uncategorized)

http://mbl.is/mm/frettir/erlent/frett.html?nid=1266961 – Sem betur fer er ekki nöfnin á mellunum þarna … annars væri ég og Kolla Hólm ekki í góðum málum…

Permalink 1 ummæli

Viðgerð

+00002007-04-26T13:23:24+00:00302007bUTCThu, 26 Apr 2007 13:23:24 +0000 16, 2006 at 12:55 p04 (Uncategorized)

Hvað á maður að gera þegar það kemur viðgerðarmaður heim til manns að laga eitthvað? Býður maður honum kaffi eða bara vandræðarlegur og fer inn í herbergi?

Hann er frammi eins og er.

Permalink 1 ummæli

Frábært!

+00002007-04-23T00:52:32+00:00302007bUTCMon, 23 Apr 2007 00:52:32 +0000 16, 2006 at 12:55 p04 (Uncategorized)

Nú get ég hætt að smíða það sem ég var byrjaður á! Þökk sé : http://www.b2.is/?sida=tengill&id=233083

Permalink 1 ummæli

Táfýla

+00002007-04-21T18:51:30+00:00302007bUTCSat, 21 Apr 2007 18:51:30 +0000 16, 2006 at 12:55 p04 (Uncategorized)

Fyrir nokkrum árum uppgötvaði Finnur sinn hæfileika, sem mjög fáir hafa í þessum heimi. Hæfileikinn er sá að hann getur ekki fengið táfýlu, þó svo að hann myndi reyna það. Nýlega hefur alltaf liðið yfir mig þegar ég fer úr skónnum (rétt?) mínum og nýlega komst ég af hverju það var, það er út af þessari allsvaðalegu táfýlu sem gýs upp þegar ég fer úr skónnum.

Ég kenni þessum skóm um þetta allt saman, Finnur og Soffía gáfu mér þá í afmælisgjöf, þetta er ótrúlega magnaðir skór, gönguskór sem þola allt.  Frekar dularfullt, Finnur = engin táfýla og hann á mjög svipaða skó og ég, ef ekki bara nákvæmlega eins?

Permalink 1 ummæli

Pravda

+00002007-04-18T17:40:03+00:00302007bUTCWed, 18 Apr 2007 17:40:03 +0000 16, 2006 at 12:55 p04 (Uncategorized)

Ég er með brandara!!

Frétti að pravda væri heitasti staðurinn í dag! HAHA

ekki fyndið?

Permalink 1 ummæli

Akureyri

+00002007-04-16T19:01:00+00:00302007bUTCMon, 16 Apr 2007 19:01:00 +0000 16, 2006 at 12:55 p04 (Uncategorized)

Á föstudaginn lagði ég á stað keyrandi í fyrsta skipti á minni ævi til akureyri, með Rögnu og Brynju. Tilgangur ferðarinnar var víst menningarferð með menntaskólanum en ég fór þangað aðallega til að heimsækja Kollu systir og Árna kærasta hennar. Lögðum eitthvað á stað um korter yfir 2, og vorum komin um hálf 6 held ég, 3 tíma og korter á leiðinni, OKEI ÉG VAR AÐEINS LENGUR EN FLESTIR AÐRIR!

Stoppuðum á laugum og ætluðum í sund en hættum við vegna þær áttu ekki sundföt og eitthvað læti. Fórum svo í sjoppuna þarna og Brynja hljóp inn og athugaði eitthvað í sjoppunni meðan ég dó næstum því úr reykeitrun í bílnum þar sem það rauk alveg rosalega úr vélinni og það kom reykur inn í bílnum líka sem var ógeðslegt. Ég fór inn og sagði konu þarna frá þessu (ég veit minna um bíla en manneskja sem veit ekkert um..bíla.) og hún sagði mér að athuga vatn og olíu, ég gerði það… eða þóttist gera það því ég kann ekkert á bíla, kann samt að athuga olíu! Keyrði svo með bílinn á verkstæði þarna við hliðina á og kallinn þar athugaði allt húddið og læti og sagði að það væri allt í lagi með hann, þannig ég, Brynja og Ragna héldum bara áfram og ekkert gerðist merkilegt á leiðinni svosem. Komum svo á akureyri um hálf 6 leitið eða um 6 … annaðhvort. Keyrðum beint í leirusjoppu sem er þarna alveg við “inngang” akureyrar og stoppuðum eitthvað, þaðan á glerártorgið og þar hitti ég Kollu systir mína :) , svo skutlaði ég Brynju og Rögnu upp í menntaskóla og ef þið heyrið frá þeim að ég hafi átt erfitt með að keyra á akureyri, þá er það bull! Svo kom Kolla upp í menntaskólann og Árni svo Kolla gæti keyrt með mig um akureyri því ég vildi sjá allan staðinn …djók ég kunni ekki að keyra þarna en ALLAVEGA!

Svo eldaðuðu Kolla og Árni mjög svo ógeðslega góðan kjúkling og mikið af meðlæti :D og var þetta alveg ótrúlega gott!

Á laugardeginum hitti ég svo Sögu vinkonu mína og vinkonur hennar Guðrún og Öddu, mjög fyndnar stelpur! Allavega þá var þetta mjög skemmtileg ferð og mjög gaman að fara á akureyri. Vonandi fer ég fljótlega aftur þangað. okeibæbæ

Permalink 1 ummæli

Zero

+00002007-04-03T19:50:12+00:00302007bUTCTue, 03 Apr 2007 19:50:12 +0000 16, 2006 at 12:55 p04 (Uncategorized)

Í dag byrjaði heilinn minn að virka eftir eitthvað sem gerðist í æsku, því ég fattaði loksins þessar coke zero auglýsingar!

“Af hverju ekki kærustur með Zero er ég feit í þessu?”

“Af hverju ekki kynlíf með Zero forleik?”

og fleiri setningar … fattaði í dag að þetta zero þýðir auðvitað núll og já… þið hin hafið örugglega fattað þetta frá byrjun! minn tími mun koma!

Permalink 4 Ummæli

Drasl

+00002007-04-01T16:26:51+00:00302007bUTCSun, 01 Apr 2007 16:26:51 +0000 16, 2006 at 12:55 p04 (Uncategorized)

Þú veist að það er drasl í herberginu þínu þegar þú finnur lík ættingja þar. Djók

Þetta var ekki ættingi.

Permalink 4 Ummæli