Ný mella
Pussycat dolls er nú að leita að nýrri mellu til að koma í lið við sig, og það eru komnir þættir um þetta, svo ég spyr, af hverju ekki bara að fara í næsta melluhverfi í bronx og taka þar eina mellu?
Kannski því þær mellur hafa ekki efni á meikuppi og hafa ekki sofið hjá söngkennara til að geta raulað, spurning.
Veikur
Er búinn að vera veikur í 5-6 daga núna og ég hef aldrei skemmt mér jafnvel! En fer samt í skólann á morgun og býst við að fá ruslapoka af verkefnum… eða ekki. Annaðhvort.
Svo eru Kolla & Árni, Finnur bróðir & Soffía & Björgvin að koma um páskanna og þá verður kátt á hjalla, ef það er orðatiltæki. (man ekki hvernig það var). Fékk blóðnasir um daginn .. ef þið vilduð vita það? Nei.. jú? Okei byrjaði með því að ég fann eitthvað leka hægt niður nefið og ekki datt mér í hug að þetta væri blóðnasir því venjulega væri ég að kafna úr blóði, en svo sá ég að þetta blóðnasir og ákvað að taka sprett inn á klósett þar sem venjulega næ ég ekki að komast á klósettið því alltaf þegar ég fæ blóðnasir þá missi ég meðvitund sökum blóðleysis.
Kannski ég segi frá af hverju ég byrjaði að fá þessa blóðnasi:
Þetta byrjaði held ég þegar ég, Finnur og Björgvin fórum í sund og vorum að fara upp úr þegar ég og Finnur fórum í kaf og ég fann þennan gífurlega þrýsting í andlitinu á mér, hélt ég hefði verið skotinn í andlitið, en … það var ekki rétt, fann svo eitthvað gífurlegt magn leka niður nefið á mér, annaðhvort hefði ég innbyrgt gífurlegt magn af vatninu og það væri að leka niður eða að heilinn á mér væri að koma í gegnum nefið á mér, en nei þetta var blóðnasi því einhver kona öskraði “HANN ER MEÐ BLÓÐNASIR!!!” (ekki lygi) og ég hljóp inn í klefa og inn á klósett og stoppaði blæðinguna með glæsibrag, eða það hélt ég. Daginn eftir fórum við aftur í sund og sundlaugamaðurinn sagði “Helgi, fékkst þú blóðnasir í gær?” ég “jaaá..:S:S:S:
;):@” hann “Já kannski lætur vita næst, hélt að einhver hefði verið myrtur inn í klefa, það var blóð á klósettinu, speglinum, veggnum og á gólfinu… ég ” Ó… já ég geri það..næst.”
Gaman já! kthxbye
Skólinn
Alltaf þegar maður horfir á þætti í tölvunni, og maður finnst atriðið sem er í gangi leiðinlegt, þá spólar maður áfram oft. Eins og í menntaskóla, oftast er mjög leiðinlegt að læra og tíminn líður fáránlega hratt, alveg eins og einhver sé að spóla yfir leiðinlegu kaflanna. Ekki? Jæja ég mátti reyna vera djúpur!
Var semsagt að reyna segja það er eins og menntaskólaárin séu bara spóluð áfram .. líður allt of hratt!
my boobs
Í kvöld heyrði ég virkilega gott lag, það heitir my boobs are OK og er með einhverri frábærri söngkonu. Hér er myndbandið frétti ég : http://www.youtube.com/watch?v=aqGrgaQsIIE
Ég hef reyndar aldrei horft á það og það er ekki ástæðan af hverju mér líkar þetta lag!
Já
Nú þegar Anna Nicole er búin að vera látin í nokkrar vikur, þá get ég loksins sagt þetta : Ég gæti verið faðir barnsins hennar (okkar). Plís? Okeibæ.