Geðveiki

+00002006-11-30T18:40:44+00:00302006bUTCThu, 30 Nov 2006 18:40:44 +0000 16, 2006 at 12:55 p11 (Uncategorized)

Hér með lýsi ég yfir geðveiki.  Veit varla hvað ég er að gera lengur.

Ég man eftir að hafa vaknað í morgun, klætt mig og keyrt í skólann,  man varla eftir tímanum …fór heim í hádegi og svo aftur í skólann. Man að Stefanía kennari gaf okkur nemendunum nammi og piparkökur svo rankaði ég við mér í sálfræðitíma og þar var Arnar með stuttan tíma, þar næst ranka ég við mér heima í tölvunni að vera horfa á lost.

Því næst lagði ég mig í stofunni og vaknaði við bílflautu, stóð upp og tjékkaði út, enginn þar. Allavega, næst þá fæ ég mér að éta og sest fyrir framan sjónvarpið eins og ég geri á hverjum einasta degi, til að horfa á neighbours um leið og ég borða, en nei um leið og ég sest þá heyrist neighbourslagið… þá var þátturinn búinn!

Geðveiki!

Permalink 4 Ummæli

Fræg fjölskylda

+00002006-11-27T16:59:05+00:00302006bUTCMon, 27 Nov 2006 16:59:05 +0000 16, 2006 at 12:55 p11 (Uncategorized)

Þegar ég var barn þá lék ég mér oft út í snjónum, en í eitt skiptið fór ég út og sá dagur breytti lífi mínu alveg. Fór út þann dag með Hjálmari og Kollu systur minni og það var óveður, sá bíl koma og það kom kona út og tók mynd af okkur, Kolla datt aftur á bak og það sást í lappirnar á Kollu, ég sat þarna upp á snjóskafli og Hjálmar mér við hlið eins og 2 barnafyrirsætur.

Barnastjörnur voru fæddar.
Þetta má rekja frá árinu 1979 þegar bræður mínir, Finnur og Styrmir birtust í morgunblaðinu, og þar voru barnastjörnur fæddar, nema Styrmir bróðir nýtti sér það ekkert og varð ekkert meir frægur en það. (Mátt samt alltaf notfæra þér frægð okkar)

Finnur hinsvegar nýtti sér það og stofnaði bloggsíðu og varð þekktur sem Finnur.tk og síðar meir stofnaði hann arthur með Jónas Reyni, og eru þeir frægir og eru eignir þeirra metnar á 7. milljarða dali.

Björgvin Gunnarsson er eina barnið á heimilinu sem ekki varð barnastjarna eins og öll hin, en meina, það hafa þetta ekki allir í sér. Björgvin er þekktur undir nafninu Lubbi Klettaskáld og hefur hann gefið út 3 ljóðabækur og leikið jólasvein í sjónvarpinu og fyrir það fékk hann einhver tilboð. Eignir hans eru metnar á 6.5 milljarða dali.

Kolbrún eða Kolla eins og hún kallar sig var þekkt sem “Litla stelpan með lappirnar” eftir að hún féll um koll í myndatökunni miklu. Hún varð barnastjarna þennan dag með mér og Hjálmari, en ekki var allt sem sýndist. Kolla höndlaði ekki álagið að vera barnastjarna svo hún byrjaði að reykja og birtist í þættinum “babystars gone wild” og hvarf svo af sjónarmiði fjölmiðlarins. En Kolla reif sig upp og kom með comeback og vann keppni á eiðum og endaði þar sem austurlandsmeistari kvenna fór með hópi snillinga og stjarna (ég og Kolla einu stjörnurnar þarna) og keppti í Íslandsmeistaramóti í borðtennis og lenti hún í öðru sæti og fékk mörg tilboð en hefur ekkert gert neitt í mörg ár. Eignir hennar eru metnar á 5.5 milljarða dala en + Árna eignir eru eignir þeirra metnar á 7.7 milljarða dala.

Ég spyr, gæti konan frá morgunblaðinu hafa þekkt svip með mér og Finn og Styrmi bróður og hugsað “Heyrðu, þessi snáði er alveg eins og barnastjörnunar sem birtust í morgunblaðinu árið 1979, ég hef fundið aðra barnastjörnu” eða var þetta bara tilviljun?

Ég vissi ekki í hvorn fótinn ég átti að stíga (bæði vegna þess að ég var lengi að læra labba og fólk lét mig ekki í friði). en ég höndlaði þetta, annað en hún systir mín.

Árin liðu og ég gerði ekkert sérstakt til að lífga frægð mína upp fyrr en ég vann austurlandsmót karla á eiðum sama ár og sama tíma og systir mín vann keppnina fyrir stelpurnar. Þarna var mómentið komið aftur, ég og Kolla aftur orðin fræg saman, tilviljun? Ég held ekki!

Ég fór til Reykjavíkur og endaði þar í 5 sæti og fólk æpti “Þetta er Helgi, barnastjarna fellabæjar!!”.

Ár liðu þar til ég fékk tilboð frá stöð2 um að labba framhjá girðingu fellabæjar þar sem það hafði verið óveður (það er eitthvað með mig og óveður – athuga efst á blogginu, snjóóveður og ég fór út.) og girðingin hjá leikskólanum lá niðri vegna roks. Hjálmar var með mér og við tveir gengum framhjá girðingunni meðan þeir tóku það upp og frægð mín byrjaði að rísa á ný. Hjálmar fékk samning hjá Victoria Secret vegna göngulagsins sem hann notaði þennan dag og er hann núna í dag staddur í Englandi gangandi á tískupöllum.

Svo áðan var ég í útvarpinu.

Eignir mínar eru metnar á 5. milljarða dala.

Svo var fjölmiðlafulltrúi minn að segja að ég ætti helst ekki að tala við ykkur venjulega fólkið, svo ég mun taka eitthvað af tenglum burt afsakið.

Permalink 16 Ummæli

R(agna)AUÐUR!

+00002006-11-20T23:52:32+00:00302006bUTCMon, 20 Nov 2006 23:52:32 +0000 16, 2006 at 12:55 p11 (Uncategorized)

Fór út að labba með RÖGNU áðan og við værum bæði klædd illa, ég átti happaþrennu með 300 krónum inn á sem tók korter að sannfæra manninn um, leið frekar illa að sannfæra hann að þetta voru 300 krónur, TVÖ JÓLATRÉ ERU 150 OG EF ÞAÐ ERU 2 JÓLATRÉ EÐA FLEIRI ÞÁ SAMEINAST UPPHÆÐIN! það stendur!!

Allavega ég fékk 300 krónur og keypti kók í dós og lion bar (Lionbarið var fyrir RÖGNU) og þetta er að breytast í leiðinlegasta blogg veraldar, ekki út af RÖGNU bara því ég er að segja svo leiðinlega frá.)

Svo ákvað ég að fara skógarleiðina heim og RAGNA elti, það var ekki gáfulegt þar sem við misstum meðvitund alls fjórtán sinnum á leiðinni og ég er að fá kuldaáfall í heilann núna á þessari stundu.

Allavega, eftir að hafa misst meðvitund oft þá héldum við áfram að labba snjóskaflanna og ég hef aldrei verið eins rauður á anditinu og núna. Nema kannski þegar ég fæddist en skulum ekki fara út í þá sálma hér er það? Jú kannski, þetta byrjaði allt saman þeg…nei djók. :l

……

RAGNA, gjörðu svo vel.

Permalink 21 Ummæli

+00002006-11-17T17:58:17+00:00302006bUTCFri, 17 Nov 2006 17:58:17 +0000 16, 2006 at 12:55 p11 (Uncategorized)

IF YOUR LIFE WAS A MOVIE, WHAT WOULD THE SOUNDTRACK BE?
So, here’s how it works:
1. Open your library (iTunes, Winamp, Media Player, iPod, etc)
2. Put it on shuffle
3. Press play
4. For every question, type the song that’s playing
5. When you go to a new question, press the next button
6. Don’t lie and try to pretend you’re cool…

Opening Credits: madonna – Like a prayer

Waking : Antony and the johnsons : What can i do
First Day At School: White stripes – fell in love with a girl
Falling In Love: Nightwish -  kvolema tekee teiteilijan
Fight Song: ABBA – take a chance on me ( HAha hvað er þetta lag að ger…okei ég á þetta lag!

Breaking Up: Alanis Morissette – Wunderkind


Prom: Spirals -
Getting Back Together: No doubt – X-Girfriend

Birth of Child: Nelly Furtado – maneater ( :( )
Final Battle: Sinead O’connor – You made me the thief of your heart
Death Scene: Roxette – I don’t want to get hurt (hehe)

Funeral song: Garbage – I would die for you (Kannski AÐEINS OF SEINT!)

End Credits: Dancing in the moonlight – toploader

Permalink 7 Ummæli

Ógeð

+00002006-11-13T19:59:30+00:00302006bUTCMon, 13 Nov 2006 19:59:30 +0000 16, 2006 at 12:55 p11 (Uncategorized)

Tveir bandarískir hermenn létust létust í Bagdad þegar sprengja sprakk á vegi sem þeir óku um í dag, tveir hermenn til viðbótar særðust. Tveir hermenn létust fyrr í dag í sjálfsvígsárás í héraðinu Salaheddin og hafa nú 34 bandarískir hermenn látist í Írak í nóvember

2 mínútna þögn takk.

hahahah nei segi svona.

Permalink 7 Ummæli

Bónus?

+00002006-11-13T00:21:30+00:00302006bUTCMon, 13 Nov 2006 00:21:30 +0000 16, 2006 at 12:55 p11 (Uncategorized)

Okei, ég fór í bónus um daginn með Ellen Rut, hún keypti sér 2L pepsi max og eitthvað dót og ég setti í poka fyrir hana, hún borgaði og kom svo og tók pokann, ég var en með puttann á milli pepsísins og pokans og ég átti ekki annara völ en að sleppa því hún tók pokann og ég sleppti, þá missti hún pokann (samt misstum við bæði pokann eiginlega) og ég sá þetta gerast í slow motion, pepsi flaskan lenti á gólfinu og tappinn flaug af flöskunni og pepsi max út um fokking allt, stór pollur þarna, pepsi á veggnum, pepsi sem fór á gamla konu sem öskraði “GEVÖÐ MINN GÓÐUR HVAÐ ER AÐ SKE” og undir afgreiðsluborðið. Ég og Ellen stóðum þarna eins og fávitar og horfðum á hvort annað og vissum ekki okkar rjúkandi ráð, stóðum í svona 2-3 mínútur og þá braut Ellen þögnina með því að segja “Viltu rétta mér nammið mitt.” með mjög lágum tón. Svo hljóp ég út, án gríns ég hljóp.

Síðan þá hef ég ekki farið í bónus.

Annars er ég alltaf að lenda í einhverju vandræðarlegu svo ég er orðinn býsna vanur.

Permalink 7 Ummæli

Siminn

+00002006-11-10T15:57:31+00:00302006bUTCFri, 10 Nov 2006 15:57:31 +0000 16, 2006 at 12:55 p11 (Uncategorized)

Sá auglýsingu á netinu sem hljómaði svona “Veistu hvað, Marissa?” “Hvað?” Svo kemur eitthvað “fylltu rafrænt með gsm frelsi blabla. “Ertu ekki að grínast Summer?”

Ég hló.

Annars kem ég bráðum með blogg úr bónusferð sem ég fór í um daginn!

Permalink 5 Ummæli

Rjúpa

+00002006-11-04T01:14:13+00:00302006bUTCSat, 04 Nov 2006 01:14:13 +0000 16, 2006 at 12:55 p11 (Uncategorized)

Ef einhver vill rjúpu í jólamatinn þá er ég með eina hérna heima, þökk sé kettinum mínum.

Permalink 24 Ummæli

Emórúntur?

+00002006-11-01T19:36:17+00:00302006bUTCWed, 01 Nov 2006 19:36:17 +0000 16, 2006 at 12:55 p11 (Uncategorized)

Hvernig væri að halda 1 emókvöld á viku og skrifa nokkur emólög á disk og tala um emóhluti? Allt þetta á einum rúnti?

Permalink 2 Ummæli