Basshunter

+00002006-10-30T19:40:34+00:00312006bUTCMon, 30 Oct 2006 19:40:34 +0000 16, 2006 at 12:55 p10 (Uncategorized)

Ef ég heyri þetta viðbjóðslega leiðinlega lag, boten anna þá keyri ég yfir einhvern. Ekki viljandi samt, þetta lag er oft í útvarpinu meðan ég er í bílnum og ég truflast oft. Svo þið vitið af hverju ég keyri yfir einhvern ef það gerist á næstu dögum.

Permalink 6 Ummæli

Ljóshærður?

+00002006-10-27T00:36:36+00:00312006bUTCFri, 27 Oct 2006 00:36:36 +0000 16, 2006 at 12:55 p10 (Uncategorized)

Nú er mjög oft verið að segja ég sé ljóshærður, komi með asnalegar spurning og ég sé skítug hóra, en það kemur málinu ekkert við. En hér eru tvö dæmi, augljóslega ekki ljóskulegar eða neitt, bara …eitthvað allt annað.

Ég var að sjóða mér núðlur og sá í leiðinni fréttina um hafnarboltamanninn (held ég) sem flaug óvart á hús í new york (að mig minnir) og ég er mjög upptekinn í núðlunum enda sjóða þær eins og vindurinn og ég spyr mömmu “Oog bíddu, þurfti maðurinn sem flaug á húsið að borga skemmdirnar sjálfur?” og mamma horfði á mig “Helgi, hann er dáinn.”.

Augljóslega var ég upptekinn af núðlunum.

Svo var ég á rúntinum með Ellen í kvöld og við vorum að tala um ömmu hennar, og frænda. Amma ellenar á strák, sem er bróðir mömmu Ellenar. Og ég spyr Ellen “Er sonur ömmu þinnar einkabarn hennar?”

Augljóslega var ég úti að aka (FATTIÐI) og var mjög upptekinn af akstrinum.

Getur pottþétt enginn komið með neitt annað dæmi um ljóskuskap í mér.

Permalink 16 Ummæli

Msn?

+00002006-10-24T19:24:54+00:00312006bUTCTue, 24 Oct 2006 19:24:54 +0000 16, 2006 at 12:55 p10 (Uncategorized)

shiiiit …snjór.is/váþaðerfrekarháltfyrirsumardekkekkisatt.htlm.

Jú myndi halda það! Tek loka rúnt á eftir á sumardekkjum …því á morgun er ég að fara eyða morðfjár í vetrardekk! fokking 40 þúsund krónum ..en ég drulla peningum, svo ég hef ekki áhyggjur.

Fór annars í myndatöku áðan út af NME netdóti …og gosh mér leið eins Tyru Banks …myndavélar þar og myndavél þarna …nei okei, það var ein myndavél og mér leið illa.

Permalink 9 Ummæli

Kolla Hólm !!

+00002006-10-24T00:10:12+00:00312006bUTCTue, 24 Oct 2006 00:10:12 +0000 16, 2006 at 12:55 p10 (Uncategorized)

Kolla Hólm, ef þú lest þetta þá förum við ekki til seyðisfjarðar klukkan 8 í fyrramálið, heldur á fimmtudaginn klukkan hálf 9 !! Þannig ef þú lest þetta ekki þá ertu sennilega að fara mæta klukkan 8 í skólann til að gera ekki neitt. :P

Permalink 2 Ummæli

Bill og Ann

+00002006-10-23T16:16:51+00:00312006bUTCMon, 23 Oct 2006 16:16:51 +0000 16, 2006 at 12:55 p10 (Uncategorized)

Var að horfa á sjónvarpið á laugardaginn með bróður mínum honum Finni (Finni ??) og mömmu minni Ólöfu (Ólöfu?) á mynd sem Finnur valdi að horfa á (djók), stepmom sem skartar þeim Juliu Roberts og Susan Sarandon. Ég hætti samt að horfa eftir smá þegar ég sá eitthvað skríða á öxlinni á mér, hélt þetta væri fluga og hristi hendina og hélt að hún myndi fljúga í burtu, en svo leit ég á þetta þá var þetta könguló sem skreið í átt að mér! Djöfulsins viðbjóður …bætti þar með norðurlandamet í að stökkva upp og fara úr peysunni á sirka 0.6 sekúndum. Fór svo og brenndi peysuna og lá í fósturstellingunni í korter.

Annars var ég í ensku áðan, þurfti að leika einhvern Bill þar. Gaman gaman. Ógeðslega leiðinlega blogg.

Permalink 5 Ummæli

Óboy

+00002006-10-18T23:14:55+00:00312006bUTCWed, 18 Oct 2006 23:14:55 +0000 16, 2006 at 12:55 p10 (Uncategorized)

http://bulapictures.com/gallery/snake_charmer.html

Frábært, ég á ekki eftir að gera neitt fyrstur í heiminum, takk kærlega  Khum!

Permalink 5 Ummæli

Fm957

+00002006-10-18T12:02:00+00:00312006bUTCWed, 18 Oct 2006 12:02:00 +0000 16, 2006 at 12:55 p10 (Uncategorized)

Var að hlusta á fm957 á leiðinni heim úr skólanum í morgun, og eitthvað var verið að ræða um friends þættina þar, og einhver útvarpsgaur sagði að friends væri ofmetið (minnir mig) og ekki skemmtilegt, svo hringdi gaur og sagði “Ég er alveg sammála, virkilega ofmetnir þættir…” og þá hugsaði ég “Vá, sjaldan sem fólk segir svona, virðist vera fínn gau…” en þá sagði hann í viðbót “En hinsvegar eru Joey þættirnir algjör snilld!” og þá hætti ég við að hugsa jákvætt um hann og keyrði yfir einhverja manneskju, sem var óvart.

Permalink 8 Ummæli

Ó?

+00002006-10-16T23:27:44+00:00312006bUTCMon, 16 Oct 2006 23:27:44 +0000 16, 2006 at 12:55 p10 (Uncategorized)

Ég kunni ekkert á þetta (kann ekkert á þetta) og Alma hjálpaði mér með þetta og gerði þetta fyrir mig, takk fyrir það! Býsna vandræðarlegt að láta stelpu hjálpa sér :( ..neiii það er ekkert svo vandræðarlegt. :D

Allavega….bless?

Permalink 3 Ummæli

Bara prófa

+00002006-10-12T15:48:01+00:00312006bUTCThu, 12 Oct 2006 15:48:01 +0000 16, 2006 at 12:55 p10 (Uncategorized)

Ég er bara að prófa þetta, búinn að fá ógeð af bloggar.is, alltaf niðri líka.

Annars er ég bara tjékka. Er að reyna setja hlekki inn sem er ekki að takast!

Permalink Rita ummæli