Ótrúlegt!

+0000c30obeWed, 11 Jun 2008 23:13:37 +0000 16, 2006 at 12:55 p06 (Uncategorized)

Ef þið horfðuð á fréttirnar á rúv klukkan sex þá náðist ótrúlegur atburður á myndband! Falin myndavél gómaði fornleifafræðing og fréttamann ferðast hraðar en nokkur önnur manneskja, ég er með þessa upptöku hér. Ef það virkar ekki þá er þetta hérna : http://dagskra.ruv.is/streaming/sjonvarpid/?file=4397954/8

Talið er að x-men myndirnar séu byggðar á sönnum atburðum, en þetta virðist sanna það og gott betur.

Permalink 2 Ummæli

Að taka lit.

+0000c31obeSun, 18 May 2008 23:19:20 +0000 16, 2006 at 12:55 p05 (Uncategorized)

Þegar ég var lítill og vann í unglingavinnunni þá varð ég alltaf mjög brúnn, en svo þegar ég hætti að vinna þar þá hætti ég alveg að verða brúnn. Síðan þá hef ég verið eins og gamall hundaskítur (svona hvítur sem mölnar niður.) Hef oft prófað að vera úti í sólbaði og reyna taka smá lit, sýna smá lit HAHAHA djók allavega það hefur ekki tekist. Í fyrra var 30° hiti í hallormsstaðaskógi eða sirka, og ég, Kolla systir, Árni kærasti hennar ákváðum að fara þangað og fara í sólbað, svo komu Finnur og Björgvin og pabbi líka. Kolla og Árni gufuðu upp þau urðu svo brún, hélt ég hefði týnt Finni því eina manneskjan sem ég sá var Björgvin og pabbi og einhver svertingi sem þóttist vera tala við okkur, og ég varð ekki einu sinni rauður, ég varð bara ennþá eins og helvítis gamall hundaskítur! En hinsvegar, komst ég að því í fyrra að húð sem verður brún af völdum sólarinnar er merki um skemmda húð, þannig að ég er bara með mjög heilbrigða húð! Ljóta, en heilbrigða. Svo um daginn var ég veikur og þurft að fara heim úr vinnunni því ég var orðinn grænn í framan og byrjaður að tala tyrknensku. Þannig það er önnur góð frétt þarna inn í, húðin á mér tekur lit! Ekki brúnan kannski en grænan, og grænn er aaðeins sérstakari litur á manneskju.  Gott dæmi um skemmda og ógeðslega húð!

Permalink 5 Ummæli

Typpi (mörg)

+0000c31obeSat, 17 May 2008 22:23:36 +0000 16, 2006 at 12:55 p05 (Uncategorized)

http://dv.is/frettir/lesa/8844

Grein um 4 eða 5 menn sem ætla gefa tittlingina á sér til reðursafnið einhverstaðar (Er veikur, gleymi öllu á nokkrum sekúndum). Og sá elsti, er íslendingur (hinir eru allir útlendir) og eigandi reðursafnsins sagði þetta „Það er hægt að þenja hann ef hann er tekinn af volgur og reisa hann. Páli er mikið í mun að hann varðveitist með reisn. Þetta verður að vera gott eintak,“ segir Sigurður” og við þetta leið yfir mig fjórum sinnum, einnig ældi ég fimm sinnum og fékk blóðnasi tvisvar sinnum. En fallegt er þetta þó. Ég þangað þegar Páll deyr!

Permalink 4 Ummæli

1995

+0000c30obeWed, 16 Apr 2008 22:22:08 +0000 16, 2006 at 12:55 p04 (Uncategorized)

Krakkar fæddir árrið 1995 sýnist mér vera of gáfaðir :

http://mbl.is/mm/frettir/erlent/2008/04/16/barnabarnid_uppgotvadi_laeknamistok/

Og http://visir.is/article/20080416/FRETTIR05/61148172

Ætla reyna gera eitthvað…eins og að uppgötva mistök á sjúkrahúsinu á Egilsstöðum eða reikna út loftsteina…eða eitthvað, sjáum til.

Permalink 6 Ummæli

Ný uppgötvun!

+0000c30obeTue, 08 Apr 2008 13:19:55 +0000 16, 2006 at 12:55 p04 (Uncategorized)

Rétt í þessu fattaði ég lagið gleðibankinn er um, sem fór fyrir hönd Íslands í eurovision 1986. Lagið fjallar um pimp og hórur hans. Hér er brot úr textanum:

,,

Þú skalt syngja lítið lag
D
Um lífsgleðina sjálfa í brjósti þér
A7 D
Og láttu heyra að þú eigir litið gleði hús


Hverjir sjá um gleðihús? Jú, pimp’s! Og hvernig fólk vinnur í gleðihúsum? Jú, hórur! Ef ég hefði ekki verið slefandi undir rúminu mínu þegar þetta lag fór út, þá hefði ég hiklaust reynt að stoppa þetta. Svívirðilegt!

Og já, lagið heitir líka gleðibanki. Það er verið að líkja gleðihúsi við banka, í banka fer maður til gjaldkera og hún lætur mann fá peninga, en í gleðihúsi fer maður til “gjaldkera” sem er þá vændiskonan, og hún tekur af þér peninga og þú færð frá henni skemmtun.  Og út kemur gleðibanki. Þetta er mín túlkun á laginu.

Permalink 4 Ummæli

Peningar!

+0000c31obeThu, 27 Mar 2008 11:20:39 +0000 16, 2006 at 12:55 p03 (Uncategorized)

Alltaf verið að tala um skuldir og slíkt í fréttum tengt Íslandi og að við skuldum sem mest, en ég veit ekki hvort fólk hafi tekið eftir þessu, en ef þið horfið vel á þessa mynd … sem var tekin með gervihnetti augljóslega og útkoman er ótrúleg! Það eru peningar undir Íslandi!

Permalink 14 Ummæli

Boy oh boy!

+0000c31obeSat, 22 Mar 2008 03:42:28 +0000 16, 2006 at 12:55 p03 (Uncategorized)

Steingeit : Ótrúlegrt en satt: þú færð strax tilbaka nákvæmlega það sem þú gefur! Það er eins og að horfa á eigin sál í speglinum og sjá orkuna sem umlykur þig.

Sjáum til, gerði grín af gogmæltu fólki í dag, hugsaði illa til fólks og vonaði allt það versta fyrir þau og eitthvað í þeim dúr. Ef eitthvað væri að marka stjörnuspár þá væri að fara nauðga mér á morgun og skera af mér lappirnar.

Permalink 2 Ummæli

+0000c31obeMon, 10 Mar 2008 16:23:22 +0000 16, 2006 at 12:55 p03 (Uncategorized)

Bandý!

MÆTTU Í BANDÝ!!!!

Permalink 1 ummæli

Lesa vitlaust.

+0000c31obeMon, 10 Mar 2008 00:33:40 +0000 16, 2006 at 12:55 p03 (Uncategorized)

,,Hakkar í sig skinkusamlokur” hét ein frétt um leikkonu sem hámar í sig skinkusamlokum, ég las þetta sem ,,Hakkar sig í skinkusamlokur”  og ég hélt að þetta væri manneskja sem væri að hakka sjálfa sig til að búa til skinkusamlokur… fattaði eftir klukkutíma að þetta var vitlaust lesið hjá mér.

Permalink 2 Ummæli

Ómögulegt!

+0000c31obeThu, 06 Mar 2008 18:19:06 +0000 16, 2006 at 12:55 p03 (Uncategorized)

http://mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2008/03/06/urvalsvistalan_laekkar_enn/

AHHHHH ÞETTA ER ÖMURLEGT!

ps djók.

Permalink 1 ummæli

« Fyrri færslur